Olíupallur Chevron Corporation er bandarískt fjölþjóðlegt orkufyrirtæki. Það er eitt af arftökum Standard Oil og hefur höfuðstöðvar í San Ramon í Kaliforníu. Fyrirtækið er starfandi í meira en 180 löndum. Chevron sérhæfir sig aðallega í olíuleit og framleiðslu á kolvetnum, olíuhreinsun, markaðssetningu og flutningum.
Chevron er eitt stærsta olíufélag heims; árið 2017 var það í nítjánda sæti á Fortune 500 listanum yfir stærstu bandarísku einkahlutafélögin og hlutafélögin í opinberri eigu og í sextánda sæti á Fortune Global 500 listanum yfir 500 stærstu fyrirtækin í heiminum. Það var einnig eitt af Sjö systrunum sem réðu ríkjum í alþjóðlegum olíuiðnaði frá miðjum fimmta áratugnum til áttunda áratugarins.